Hamsturs-skíta-flipp
Ég er farin að borga barninu mínu fyrir að snyrta í kringum sig! Það er settur listi á ísskápin og verkefni fyrir hvern dag. Samningurinn hljóðar uppá að hún fái 100 kr á viku sem fastan vasapening og svo deilast 200 kr til viðbótar yfir 7 daga og svo útborgun á föstudögum eftir framtakssemi. Hún er buin að standa sig vel enda peningar í boði. Í gær þegar ég kom heim var hún ný búin að þrífa hamsturs búrið.. ekki það sé frásögu færandi nema fyrir það leyti að hún gerði það á eldhúsborðinu!!!! Sem þýddi eldhúsborðið og gólfið þar í kring var allt í hamsturs-skíta-sagi.. og líka stofuborðið þar sem hún var líka að horfa á sjónvarpið á meðan þessu stóð... uff.. þetta er ekki buið... þegar hún var búin að taka sagið og skítinn úr búrinu á eldhúsborðinu tók hún sig til og þreyf búrið svona rosa vel í baðkarinu!!!!! Ég fékk hamsturs-skíta-sýkla flipp á þessu uppátæki hennar. Dró fram sótthreynsandi og öll tiltæk áhöld til að þrífa þetta og rétti henni.....meðfylgjandi var svampur sem hún notaði til að þrífa skítin úr baðinu. Ekki það að hún gerði þetta vel og allt það.. nema eftir skrúbbið lagði hún hamsturs-skíta- svampinn svo snyrtilega á andlits þvottapokann minn á vaskinum!! uff.. ég stóð mig að þvi að byðja hana vinsamlega að hugsa.. þó það væri ekki nema smá skynsemi sem hún myndi leggja til... Henni fannst þetta bara vera tuð í mér og ranghvolfdi augunum. Ég skánaði greinilega ekki eftir þvi sem leið á kvöldið þvi ég fór fram á að hún færi með ruslið, gengi frá hreynu fötunum sínum inn í skáp og minnti hana á hvað hún ætti að gera í dag á verkefna listanum... Það endaði með þvi að hún pirraðist heiftarlega og bað mig um líf sitt til baka!!!! hahahaha.... drama?!

3 Comments:
já nei Marta mín þetta er ógó. Ég veit um eina konu sem skar sig á eldgömlu hamstrabúri niðri kompu (hamsturinn hefur örugglega rottnað í búrinu) og fékk drep í fótinn. Fóturinn var svo tekinn af henni og hún er í hjólastól með geðveikar kvalir því hún finnur enn fyrir fætinum.
Hvað varstu að gefa henni hamstur? ég legg til að þú losir þig við hamsturinn núna og fáir þér kött.
11:43 AM
Marta, ufff skil tig allveg mest, myndi ørugglega lika taka skita-sykla flipp!! OJJJJ...
Ja, fadu ter kott!! Hafdu hann bara sem innikott og losadu tig vid musina.
9:20 AM
Hvað er meilið hjá Guðný Mörtu?
Kv. Kiddý
1:40 PM
Post a Comment
<< Home